Skilmálar
SKILMÁLAR
Afgreiðsla og afhending
Pantanir eru afgreiddar innan tveggja virkra daga.
Hér er hægt að sjá ferðaáætlun Eimskip ef þú ert á landsbyggðinni.
Skilafrestur er 14 dagar frá afhendingu vörunnar. Vöru fæst aðeins skilað sé hún ónotuð, í upprunalegum umbúðum og í söluhæfu ástandi.
Til að skila vöru skal kaupandi senda hana til EliteBeautyLashes, Arnarsmári 40, 201 Kópavogur. Kaupandi ber kostnað af því að skila vöru og er sendingarkostnaður ekki endurgreiddur.
EliteBeautyLashes endurgreiðir vöruna strax þegar henni hefur verið skilað.
Ef viðskiptavinur hefur fengið afhenta ranga eða gallaða vöru mun seljandi afhenda viðskiptavini nýja vöru án frekari kostnaðar eða endurgjalds.
Verð
EliteBeautyLashes áskilur sér rétt til að gera breytingar á verði í netverslun án fyrirvara. Það verð gildir sem kemur fram á pöntunarstaðfestingu kaupanda og var í gildi þegar pöntun var gerð.
Sendingarkostnaður bætist við verð vöru í lok kaupferils og áður en greiðsla fer fram.
Skattar og gjöld
Öll verð í netverslun eru með virðisaukaskatti. Reikningar fyrir kaupum eru gefnir út með virðisaukaskatti.
Greiðsla
Hægt er að greiða með kreditkorti, apple pay, VISA, Mastercard Maestro og American Express, Aur, Netgíró eða millifærslu. Pöntun er ekki staðfest fyrr en greiðsla hefur borist.
Persónuvernd
Farið er með allar upplýsingar sem seljandi móttekur sem trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu. Persónuupplýsingar eru geymdar í gagnagrunni elitebeautylashes.is og hefur enginn nema eigandi vefsins aðgang að þeim. Persónuupplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila. Við kaup á vöru veitir viðskiptavinur EliteBeautyLashes samþykki sitt fyrir að fyrirtækið safni og vinni úr persónuupplýsingum úr gagnagrunni fyrirtækisins. EliteBeautyLashes mun ekki undir neinum kringumstæðum geyma kreditkortaupplýsingar kaupanda, þar sem kaupandi fer sjálfkrafa inn á örugga greiðslusíðu Borgunar (Teya) til að ganga frá greiðslu. Aðgangur viðskiptavinar og notkun elitebeautylashes.is er háð skilmálum og skilyrðum sem koma fram í þessari tilkynningu um lagaleg atriði.
Vafrakökur
Vefsíða EliteBeautyLashes notar vafrakökur til að tryggja sem bestu mögulegu upplifun af síðunni fyrir notendur og eðlilega virkni á vefnum. Við notum vafrakökur einnig til að beina auglýsingum til markhópa, til greiningar, og til að bæta upplifun notenda.
Trúnaður
Kaupandi skuldbindur sig til að gefa réttar upplýsingar við kaupin, svo sem heimilisfang og netfang. Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Breytingar á skilmálum og úrlausn deilumála
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum. Ávallt skal leitast við að leysa mál sem kunna að koma upp á milli kaupanda og seljanda á sem einfaldasta hátt.
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um neytendasamninga nr. 16/2016 og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Ákvæði laga um lausafjárkaup gilda eftir því sem við á.
Hafi viðskiptavinur frekari spurningar er velkomið að hafa samband við okkur á elitebeautylashes@elitebeautylashes.is. Spurningum er svarað eins fljótt og mögulegt er.
Upplýsingar um seljanda
EliteBeautyLashes ehf.
Arnarsmári 40, 201 Kópavogur
elitebeautylashes@elitebeautylashes.is
Kt. 460923-1150
